Fréttir
Camerich Lazytime | Vinsælasti sófinn okkar
Lazytime er klárlega vinsælasti sófinn okkar, enda fer ótrúlega vel um mann í þessum glæsilega sófa frá Camerich. Djúp sæti og mjúkar bakpúðar gera hann fullkominn til að sökkva sér í eftir langan dag. Hægt er að panta Lazytime í ótal útfærslum eftir því hvað hentar þínu rými, og blanda einingunum saman við einingar úr Lazytime Plus línunni. Camerich býður upp á mikið úrval af vönduðum áklæðum ásamt leðri. Áklæðissófarnir eru með aftakanlegt áklæði, sem þýðir að hægt er að taka það af öllum sófanum og láta hreinsa sé þess þörf. Verðið miðast við þriggja sæta sófa í Grace áklæði. Komdu og prófaðu Lazytime hjá Heimahúsinu.
Learn moreDusty Deco á Íslandi | Sænsk hönnun fyrir heimilið
Dusty Deco er sænskt hönnunarmerki sem hjónin Edin og Lina Kjellvertz stofnuðu. Þau búa á Mallorca og sækja innblástur í litina, sólbjarta arkitektúrinn á eyjunni og evrópska hönnun frá sjötta til áttunda áratugarins. Útkoman er hönnunarhúsgögn og munir sem eru í senn lúxus og hráir, nútímalegir og klassískir. Það sem gerir Dusty Deco sérstakt er hvernig ólík efni mætast. Tré og marmari, mjúkt bouclé og slípaðir fletir. Hver hlutur á að hafa karakter og fá að njóta sín einn og sér rétt eins og í hóp. Hjá Heimahúsinu, húsgagnaverslun í Reykjavík, færðu valið úrval frá Dusty Deco og við hjálpum þér að finna stykkin sem passa þínu heimili. Kíktu við í Ármúla 8 eða skoðaðu úrvalið hjá okkur á netinu.
Learn more