Skip to content

Fríar sendingar innanlands af gjafavöru ISK20.000+

Október | Best að vera heima

Október | Best að vera heima


OKTÓBER | BEST AÐ VERA HEIMA 

Það er farið að kólna og dimma fyrr á kvöldin. Hjá okkur þýðir það fleiri kerti, fleiri lampar og meiri tími heima. Við drögum fram teppin, kveikjum á uppáhaldslömpunum og leyfum okkur að dvelja aðeins lengur yfir kvöldmatnum. Þetta er einn af okkar uppáhaldstímum ársins.

Októberstemningin okkar einkennist af hlýjum brúnum tónum, mjúkri áferð og notalegri birtu. Pyramid lampinn varpar hlýjum bjarma í stofuna og kertaljós í Noori kertastjökunum setja svip á kvöldið. Okkur finnst fallegt að hafa lampa á nokkrum stöðum í rýminu og nóg af kertum — á borðinu, í gluggakistunni og þar sem við setjumst niður.

Eldhúsið verður líka enn meira að samkomustað á þessum árstíma. Þar viljum við hanga, prófa uppskriftir og útbúa eitthvað gott án þess að vera að flýta okkur. Við elskum að elda og bera fram í svarta leirnum; heitan ofnrétt á miðju borði sem allir geta fengið sér af. Það þarf ekki sérstakt tilefni til að leggja fallega á borð.

Og já, leður getur svo sannarlega verið kósý. Fallegi Canson sófinn var að koma til okkar og djúpi brúni liturinn passar einstaklega vel við haustið. Með mjúkum púðum, góðu teppi og lampa við hliðina verður til staður sem mann langar að koma sér vel fyrir á.

Mottur gera svo mikið fyrir hlýjuna í rýminu. Þær mýkja undir fæti og tengja húsgögnin saman. Lisboa mottan, með fallegu mynstri og hlýjum jarðlitum, fellur vel að þessari októberstemningu.

Nú langar okkur helst að kveikja á kertunum, setja eitthvað gott í ofninn og bjóða fólkinu okkar heim