Skip to content

Fríar sendingar innanlands af gjafavöru ISK20.000+

Dusty Deco á Íslandi | Sænsk hönnun fyrir heimilið

Dusty Deco á Íslandi | Sænsk hönnun fyrir heimilið

Dusty Deco at 3daysofdesign


Dusty Deco er sænskt hönnunarmerki sem hjónin Edin og Lina Kjellvertz stofnuðu. Þau búa á Mallorca og sækja innblástur í litina, sólbjarta arkitektúrinn á eyjunni og evrópska hönnun frá sjötta til áttunda áratugarins. Útkoman er hönnunarhúsgögn og munir sem eru í senn lúxus og hráir, nútímalegir og klassískir. 

Það sem gerir Dusty Deco sérstakt er hvernig ólík efni mætast. Tré og marmari, mjúkt bouclé og slípaðir fletir. Hver hlutur á að hafa karakter og fá að njóta sín einn og sér rétt eins og í hóp.

Hjá Heimahúsinu, húsgagnaverslun í Reykjavík, færðu valið úrval frá Dusty Deco og við hjálpum þér að finna stykkin sem passa þínu heimili. Kíktu við í Ármúla 8 eða skoðaðu úrvalið hjá okkur á netinu.