skilmálar heimahússins

Pantanir

Heimahúsið tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Réttur er áskilinn til að staðfesta pantanir símleiðis í undantekningartilfellum.

Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er send beint heim til kaupanda með Íslandspósti, viðkomandi fær sms áður en sendingin kemur. Ef óskað er eftir því afhendum við samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og einnig ef óskað er eftir að sækja í Ármúla 8. Þegar vara er væntanleg getur afhendingartíminn verið allt að 12 vikur.

Sérpantanir

Við tökum einnig að okkur að sérpanta vörur frá þeim merkjum sem við erum að selja. Fyrirspurnir varðandi sérpantanir skal senda á [email protected]. Þegar um sérpantanir er að ræða er afhendingartími allt að 14 vikur Farið er fram á 50% innborgun þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent, sérpöntunum er ekki hægt að skila.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja um sendingu á næsta pósthús á 990 kr. eða heimsending upp að dyrum á 1.490 kr. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira.*  

*ATHUGIÐ að þetta á ekki við um húsgögn eða stærri vörur. Við getum sent þessar vörur heim að dyrum gegn gjaldi annars er auðvitað alltaf hægt að sækja vöruna til okkar í Ármúla 8.

Við bjóðum uppá heimsendingu gegn gjaldi. Hafið samband fyrir frekari upplýsingar

Verð

24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Snúran sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.  

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi og viðskiptavinur hafi óskað eftir afhendingarmáta sem telja má ódýrastan. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið [email protected]  Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.

Greiðslur

Við bjóðum upp á þrenns konar greiðslumöguleika, millifærslu, kreditkort eða netgíró.

Það er hægt að greiða með millifærslu, þegar sá valmöguleiki er valinn þá færðu sendan tölvupóst með upplýsingum um reikningsnúmer og kennitölu fyrirtækisins. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 2ja daga telst pöntun ógild. Til þess að auðvelda okkur að staðfesta hvort að millifærsla hefur farið í gegn mælum við með því að senda kvittun úr heimbanka á [email protected] með pöntunarnúmeri sem skýringu.

Þú getur einnig greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Borgunar (Borgun.is) sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.

Einnig getur þú greitt með netgíró. Netgíró bíður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Þú þarft að vera með aðgang hjá Netgíró til þess að nýta þér þjónustuna, fyrir þá sem hafa hann ekki er hægt að skrá sig hérna. Þegar þú greiðir með netgíró þarftu aðeins að skrá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur stofnast á viðskiptavin í heimabanka sem greiða þarf innan 14 daga, vaxtalaust. Einnig er hægt að velja að greiða með raðgreiðslum og það er mögulegt á að dreifa því á 2-12 mánuði.

Annað

Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.

Flutningur á vöru er á ábyrgð flutningsaðila.

Shopping cart

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping