SPHERE SÓFABORÐ TRAVERTINO BIANCO 100 CM
SPHERE SÓFABORÐ TRAVERTINO BIANCO 100 CM
Sphere Round Sofa Table er kringlótt sófaborð þar sem einföld form skapa svipmikla heild. Stórar kúlur úr dökkbæsaðri beyki bera 5 cm þykka borðplötu úr gegnheilum travertínsteini. Platan er hvít með ljósum blæbrigðum í náttúrulegu æðamynstri steinsins.
Kringlótta Sphere sófaborðið fæst í tveimur stærðum, 100 og 120 cm í þvermál. Í sömu línu fæst einnig ferkantað sófaborð.
Litur, áferð og æðamynstur steinsins eru frá náttúrunnar hendi breytileg milli platna og því er hvert borð einstakt.
Hæð 35 cm
Þvermál 100 / 120 cm
Borðplata Travertínsteinn með mattri, slípaðri áferð
Undirstaða Dökkbæsað og olíuborið beyki
Couldn't load pickup availability
Hjarta heimilisins...
Stofan er staðurinn þar sem dagarnir byrja hægt með kaffibolla – og enda með góðri kvöldstund í notalegu umhverfi. Ýttu á “skoða vörur” til að finna allt sem þarf til að skapa fallegt, þægilegt og persónulegt rými sem endurspeglar þinn stíl.
Við bjóðum fjölbreytt úrval af sófum, hægindastólum, borðum, hillum, mottum og smáhúsgögnum sem sameina hönnun, gæði og virkni. Hvort sem þú kýst hreinar línur, hlýlegan skandinavískan stíl eða nútímalegt yfirbragð – þá finnurðu lausnir sem passa fullkomlega inn á þitt heimili.
