Camerich er eitt af vinsælustu fyrirtækjunum í húsgagnaheiminum í dag enda húsgögnin þeirra bæði vönduð, nútímaleg og sígild. Crescent sófinn frá Camerich er einn af þessum tímalausu sófum, fágaður og grípandi fyrir augað. Hann er með frekar þunnum örmum og bólstruðum botni sem hvílir á svart málaðri stálgrind. Sófinn er ,,loose cover“ en þá er hægt að taka áklæðið af sófanum og setja í hreinsun. Sessurnar og bakpúðarnir eru úr vönduðum svampi. Crescent sófann er hægt að panta í mörgum útfærslum og er hægt að velja úr miklu úrvali vandaðra áklæða. Crescent sófinn er einnig fáanlegur í leðri.
Verðið miðast við tungusófa í 283×160 cm í sky eða grace áklæði.
